18 ágúst 2008 |

05:23 Skóli, Fjölskylda Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá er skólinn byrjaður á ný og tölvan tekin fram úr geymslu. Ég nota internetið afar lítið á sumrin og þar af leiðandi verður lítið úr bloggsíðunni. Mér þykir við hæfi að hefja veturinn á því að segja frá sumrinu
|
 |
11 júní 2008 |

18:52 Ein athugasemd
|
 Fyrir löngu skrifaði ég innlegg í netdagbókina um lélegan fréttaflutning á mbl.is. Oftar en ekki rekst ég á villur bæði í stafsetningu og málfræði. Ástæðan hlýtur eiginlega að vera sú að höfundar fréttana gefa sér ekki tíma til þess að lesa þær yfir áður en þær eru settar á vefinn.
|
 |
11 júní 2008 |

12:53 Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá er hann Markús okkar orðinn mánaðargamall og kominn tími til að velja skírnardag. Að okkar Lútherska sið trúum við nefnilega því að Drottinn veiti frelsi sitt gegn um náðarmeðulin, þám. skírnina.
Markús verður því skírður sunnudaginn 29. júní n.k. í kristniboðssal NLM í Osló
|
 |
28 maí 2008 |

16:52 Fjölskylda 5 athugasemdir
|
 Í gær var hann Markús okkar tveggja vikna gamall. 13 maí rétt fyrir 13 kom hann í heiminn og þann dag breyttist líf okkar foreldranna til allrar frambúðar. Mig hafði aldrei grunað hversu mikið stökk það var þegar fyrsti fjölskylduaukinn kom.
|
 |
16 maí 2008 |

05:33 Fjölskylda 7 athugasemdir
|
 Jæja, þá get ég loksins sagt frá því að ég hef eignast lítinn strák. Hann var við fæðingu 56 cm langur og 3,9 kíló (þ.e. tæplega 16 merkur fyrir þá sem skilja slíkt). Hann er ljósbrúnn og með heilmikið dökkt hár. Í dag fékk hann loksins að koma heim með mömmu og pabba.
|
 |
06 maí 2008 |

17:32 Engar athugasemdir
|
 Ég er alveg hissa á því hvað maður getur orðið úrvinda af því að sitja úti í sólinni án þess að gera nokkurn skapaðan hlut...
|
 |
24 apríl 2008 |

03:27 Ísland, Fjölskylda Ein athugasemd
|
 ... og takk fyrir veturinn. Í tilefni dagsins ákvað ég að flagga íslenska fánanum frá svölunum okkar. Ekki leið á löngu þar til ég fékk spurningar um fánan, og hvort að það þýddi að fjölskylduaukinn væri kominn í heiminn. Þannig er nú ekki og mér þykir amk. ólíklegt að hann komi í þessari viku.
|
 |
22 apríl 2008 |

07:01 Fjölskylda Ein athugasemd
|
 Síðustu daga hefur ýmislegt gerst. Á meðan við höfum verið að mála og veggfóðra á svefnherberginu og baðherberginu hefur Margrethe þurft að eyða nokkrum tíma uppi á sjúkrahúsi...
|
 |
08 apríl 2008 |

03:52 Fjölskylda 2 athugasemdir
|
|
Eins og ég hef sagt áður hefur konan mín verið mjög slæm af morgunógleði alveg frá því að hún varð ólétt. Þótt hún gubbi ekki á hverjum degi þá er henni óglatt frá morgni til kvölds. En nú styttist í að þetta taki sinn enda og krakkinn fái að líta dagsins ljós.
|
 |
23 mars 2008 |

12:12 Fjölskylda, Kristindómur Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá er runninn upp páskadagur. Ég og Margrethe höfum verið heima í Osló til þessa og haft það mjög gott. Einar, vinur okkar, kom í heimsókn á skírdag og við snæddum saman páskalamb.
Föstudaginn langa vöknuðum við upp við nýfallinn snjó. Hingað til hefur verið mjög hlýtt í vetur og nú eru laufin farin að springa út á trjánum. Vonandi hefur þessi skyndilega snjókoma ekki vond áhrif á vorið. Sumstaðar í Suður-Noregi snjóaði nærri því hálfum meter þessa einu nótt, þannig að þetta kom mjög á óvart.
Í dag fórum við í guðsþjónustu í kristniboðssalnum niðri í bæ. Ég gleymi því stundum, en kristniboðssalurinn er fyrst og fremst söfnuður nemenda og annara sem búa bara stuttan tíma í Osló. Þessvegna er fremur fámennt um jól, páska og aðrar stórhátíðir, þegar nemendur fara heim. Samkoman í dag var engin undantekning og var salurinn ekki einu sinni hálfur.
Nú bráðum ætlum við að borða páskakvöldverð (hreindýr) og svo förum við í heimsókn til mágkonu minnar, þar sem boðið verður upp á kaffi og köku. Þetta er bara næstum því eins og á jólunum.
--
Páskarnir ættu að sjálfsögðu að vera stærsta hátíð okkar kristinna manna. Samt sem áður fellur innihald þeirra oftar í gleymsku en innihald jólanna. Við meigum ekki gleyma því að páskum fyrir tæplega 2000 árum síðan dó Jesús Kristur á krossinum og tók á sig öll okkar illskuverk, mistök og ranglæti. Hans vegna getum við hlakkað til en stærri hátíðar á himnum. [Sjá áfram: Um frelsarann]
|
 |
| |