|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
16 maí 2008 |

05:33 Fjölskylda Höf: Sakki
|
Jæja, þá get ég loksins sagt frá því að ég hef eignast lítinn strák. Hann var við fæðingu 56 cm langur og 3,9 kíló (þ.e. tæplega 16 merkur fyrir þá sem skilja slíkt). Hann er ljósbrúnn og með heilmikið dökkt hár. Í dag fékk hann loksins að koma heim með mömmu og pabba.
Vatnið hjá henni Margrethe, konunni minni, fór að leka á laugardagsmorgun. Eftir það gengu hlutirnir mjög hægt fyrir sig. Eftir miklar þjáningar konunnar fæddist sonur okkar þriðjudaginn 13. maí, rétt fyrir klukkan eitt eftir hádegi.
Þótt hann sé almennt álitinn stór, þykir mér hann vera ósköp lítill. Hann byrjaði ekki að borða almeinilega fyrr en í gær, en nú stendur hann sig vel. Síðustu nótt svaf hann líka næstum alla nóttina.
Á morgun er 17. maí, þjóðhátíðardagurinn, þannig að hann kom rétt í tæka tíð.

Fara aftur á : Dagbók
|
 |
Hlínza frænka | föstudagur, 16-05-08 17:16
Jiii til hamingju frændi! Þetta er stórglæsilegur strákur. Oh ég trúi því varla að þú sért orðinn pabbi, en til hamingju, þú átt eftir að standa þig vel!
|
Marta | laugardagur, 17-05-08 08:16
Hej, jättegrattis med pojken, jag ser jättemycket fram imot att se han. Hälsa så mycket till Margrethe ifrån mig (jag kan inte öppna hennes blogg här i Kina) Kram på er alla tre
|
Maggi Hilmars | laugardagur, 17-05-08 16:45
Blessaður. Til hamingju með drenginn. Guð blessi framtíð hans. Bið að heilsa konunni þinni.
|
Þóra Jenny | mánudagur, 19-05-08 15:23
Innilega til hamingju með drenginn gamli vinur Flottur drengur
|
Árni Hilmarsson | mánudagur, 19-05-08 18:44
Sæll og blessaður, Sakki! Til hamingju með krílið, þetta er bara pattaralegur strákur. Viltu ekki fara að panta dvöl fyrir hann á Ástjörn? . Guð blessi drenginn og ykkur hjónin. Bestu kveðjur!
|
Sigurbjörg Guðmundsdóttir | fimmtudagur, 22-05-08 17:18
Hjartanlegar hamingjuóskir með litla drenginn!
Bestu kveðjur,
Lilla frænka á Akureyri
|
Sakarías Ingólfsson | föstudagur, 23-05-08 12:59
Ég þakka kærlega fyrir allar hamingjuóskirnar. Ég hafði bara ekki hugmynd um að svona margir læsu netdagbókina mína. Kemur skemmtilega á óvart.
|
| |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|