Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
02
mars
2007

  17:50       Kristindómur      

Höf: Sakki

Mig langar að segja ykkur frá lítilli bók sem ég fékk í jólagjöf fyrir rúmu ári síðan. Bókin heitir á Íslensku "Adrían Frændi" og er gefin út af bókaútgáfunni Salt. Bókin segir frá ungum manni sem er nýútskrifaður úr guðfræðinámi og fær að takast á við raunverulegt verkefni með Adríani frænda sínum. En þrátt fyrir Guðfræðinámið var ýmislegt sem hann ekki var búinn undir.

Bókin höfðar að vísu sérstaklega til ungra predíkara og presta, en hefur að geyma svo tæran boðskap að allir get haft gagn af. Bókin er stutt, aðeins um 60 síður minnir mig, en þrátt fyrir það mjög spennandi. Hún bendir á ýmsar gildrur og gryfjur sem ungur kristinn einstaklingur getur fallið í.

Ungi guðfræðineminn og frændi hans setjast að í litlu þorpi til þess að reyna að kenna þorpsbúum fagnaðarerindið um Jesú Krist. En fólkið sem lengi hafði lifað i myrkrinu, án krists, átti ekki svo auðvelt með að taka við honum. Þar að auki var ungi guðfræðineminn ekki eins lærður og eins mikill og hann í upphafi hélt. Starfið í þessu litla þorpi, og staðfesta frænda gamla, áttu smám saman eftir að breyta viðhorfi hans.

Ég mæli eindregið með þessari bók. Hún er stutt og spennandi og  hefur ríkan boðskap sem skilur eftir sig djúp spor í huga lesandans.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Ásgeir | föstudagur, 02-03-07 19:40
Sælir! flott síða. Haltu áfram að blogga
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti