Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
Sofandi í fangi mömmu
28
maí
2008

  16:52       Fjölskylda      

Höf: Sakki

Í gær var hann Markús okkar tveggja vikna gamall. 13 maí rétt fyrir 13 kom hann í heiminn og þann dag breyttist líf okkar foreldranna til allrar frambúðar. Mig hafði aldrei grunað hversu mikið stökk það var þegar fyrsti fjölskylduaukinn kom.

Það er margt sem við vorum undirbúin fyrir, svo sem bleyjuskipti, böð, göngutúrar með kerru, grenjur um miðja nótt, vandræði með mötun o.s.frv.  En það er einnig mjög margt sem við vorum ekki undirbúin fyrir. Til dæmis það að allt hið ofangreinda getur komið á sama tíma og ekki eitt í einu.

Í síðustu viku var mamma mín, þ.e. hin nýbakaða amma í heimsókn og hún létti undir með okkur fyrstu vikuna. Það var gott að fá hjálp, en við þurfum líka að geta bjargað okkur sjálf. Það mun taka á en ég er viss um að það hefst. Smám saman hlýtur þetta allt að komast í vana.

Við erum svo sannarlega þákklát fyrir hann Markús okkar og biðjum Drottinn um að varðveita hann í frelsi sínu.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
sigga systir | fimmtudagur, 29-05-08 06:32
Bráðum kemur Sigga frænka í heimsókn og hún vill gjarnan létta undir med ykkur eina helgi Emoticon..
oh, hvað ég hlakka til að sjá litla frænda!Emoticon..
Sólrún Ásta Haraldsdóttir | mánudagur, 02-06-08 10:57
Innilega til hamingju með þennan fallega dreng!
Kær kveðja,
Sólrún Ásta.
Xodus | miðvikudagur, 04-06-08 09:53
Til hamingju með strákin
Kveðja Xodus Hlynur og Atli
Sakki | laugardagur, 07-06-08 06:33
Takk fyrir kveðjurnar. Mest hissa er ég á því að heyra frá Atla og Hlyni... Langt síðan síðast.
Kristjan og Helga Vilborg | sunnudagur, 20-07-08 10:39
Til hamingju med drenginn. Frabert!
Kvedja fra Ethiopiu
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti