Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
Sannarlega er Jesús upp risinn (Myndin er tekin úr kvikmyndinni "The Passion of the Christ", leikst. Mel Gibson)
23
mars
2008

  12:12       Fjölskylda, Kristindómur      

Höf: Sakki

Jæja, þá er runninn upp páskadagur. Ég og Margrethe höfum verið heima í Osló til þessa og haft það mjög gott. Einar, vinur okkar, kom í heimsókn á skírdag og við snæddum saman páskalamb.

Föstudaginn langa vöknuðum við upp við nýfallinn snjó. Hingað til hefur verið mjög hlýtt í vetur og nú eru laufin farin að springa út á trjánum. Vonandi hefur þessi skyndilega snjókoma ekki vond áhrif á vorið. Sumstaðar í Suður-Noregi snjóaði nærri því hálfum meter þessa einu nótt, þannig að þetta kom mjög á óvart.

Í dag fórum við í guðsþjónustu í kristniboðssalnum niðri í bæ. Ég gleymi því stundum, en kristniboðssalurinn er fyrst og fremst söfnuður nemenda og annara sem búa bara stuttan tíma í Osló. Þessvegna er fremur fámennt um jól, páska og aðrar stórhátíðir, þegar nemendur fara heim. Samkoman í dag var engin undantekning og var salurinn ekki einu sinni hálfur.

Nú bráðum ætlum við að borða páskakvöldverð (hreindýr) og svo förum við í heimsókn til mágkonu minnar, þar sem boðið verður upp á kaffi og köku. Þetta er bara næstum því eins og á jólunum.

--

Páskarnir ættu að sjálfsögðu að vera stærsta hátíð okkar kristinna manna. Samt sem áður fellur innihald þeirra oftar í gleymsku en innihald jólanna. Við meigum ekki gleyma því að páskum fyrir tæplega 2000 árum síðan dó Jesús Kristur á krossinum og tók á sig öll okkar illskuverk, mistök og ranglæti. Hans vegna getum við hlakkað til en stærri hátíðar á himnum. [Sjá áfram: Um frelsarann]


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Engar færslur
Enn sem komið er eru hefur enginn skrifað neitt hér.
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti