Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
09
september
2008

  14:16       Ferðadagbók, Fjölskylda      

Höf: Sakki

Ég fylgist ennþá með bloggsíðum nokkura af gömlu vinum mínum á Íslandi, og hef tekið eftir því að fyrr eða síðar hafa allið farið til kaupmannahafnar. Nú hef ég og litla fjölskyldan mín líka farið þessa ferð.

Upprunalega átti ég bara að fara í stutta ferð, jafnvel dagsferð, til þess að taka þátt í sunnudagaskólanámskeiði. Svona námskeið er haldið hvert ár á norðurlöndum og við skiptumst á að halda það. (Næsta haust verður það hér í Osló) Mér fannst auðvitað tilvalið að vera aðeins lengur þegar ég hafði tækifærið og bað um að flugferðin yrði flutt einn dag fram. Svo keypti ég ferjuferð til baka einum degi seinna.

Á föstudagsmorgun komum við til Kasstrúpp. Við skoðuðum allt þetta vinsæla í miðbænum. Þ.e.a.s allt annað en eiturlyfjahverfið kristíaníu. Ég skil nú ekki alveg af hverju það er svona vinsælt. Það er hvort sem er fulllt af dópistum út um allt. Annars fannst mér gaman að koma í Jónshús, skoða ráðhústorgið og jafnvel að sjá litlu hafmeyjuna. En það langmikilfenglegasta var Friðrikskirkja, eða Marmarakirkjan eins og hún einnig kallast:

 

Ég ákvað að skella einnig þesssari mynd með. Það er ekki hægt að kvarta undan kímnigáfu dananna. Það sem stendur undir skiltinu er bein anstaða þess sem skiltið táknar:

 

Svona til að segja aðeins frá Markúsi, þá vex hann og dafnar. Hann er orðinn næstum því 12 cm lengri en þegar hann fæddist og rúmum tveimur kílóum þyngri. Honum gengur vel að æfa vöðvana og ná stjórn á útlimunum. Hann er farinn að grípa hluti og hrista þá til. Hann blaðrar mikið þótt svo að enginn skilji hann. Og svo hlær hann líka stundum. Það er nú gaman.

 


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Jón Oddgeir Guðmundsson | sunnudagur, 14-09-08 17:22
Var að lesa síðuna þína frændi. Bestu kveðjur frá Akureyri. Jonni.
Maggi Hilmars | sunnudagur, 14-09-08 17:30
Sæll. Allt of langt síðan við höfum spjallað. Já, þetta er fyndið umferðarskilti!! Og gaman að sjá strákinn ykkar. Kveðja, Maggi
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti