Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Ætti ég kannski að þrjóskast við eins og Laxness og kalla lélega stafsetningu list?
11 júní 2008
18:52 Ísland, Pirringur
Höf: Sakki
Fyrir löngu skrifaði ég innlegg í netdagbókina um lélegan fréttaflutning á mbl.is. Oftar en ekki rekst ég á villur bæði í stafsetningu og málfræði. Ástæðan hlýtur eiginlega að vera sú að höfundar fréttana gefa sér ekki tíma til þess að lesa þær yfir áður en þær eru settar á vefinn.
En ég ætti kannski ekki að hrópa allt of hátt. Þessi innlegg mín í netdagbókinni eru nefnilega ekki til fyrirmyndar, enda les ég heldur ekki yfir. Ég ætti auðvitað að gera það, en mér finnst raunhæfara að biðja ykkur um að benda mér á. (Að öðrum kosti gæti ég þrjóskast við eins og Laxness og kallað hina lélegu stafsetningu mína list)
Ástæðan fyrir að ég nefni þetta er það sem ég skrifaði fyrr í dag. Þá skrifaði ég krisniboðssalurinn í staðinn fyrir kristniboðssalurinn. Mér fannst þetta nokkuð ljót villa, og hún er langt frá því að vera sú eina. Sama gildir um málfarið.
Sigga systir | sunnudagur, 22-06-08 12:34
Tilhamingju með afmælið Sakarías!..
Ég er í vinnunni og get þess vegna ekki hringt í dag. Ég vona að þú njótir það sem eftir er dagsins!.. kær kveðja frá okkur á klakanum
ps skila kveðju til Margrétar og Markúsar