|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
 Þessar bækur eru að vísu ekki á hebresku heldur latínu eða þýsku. Úr bókasafni Weissenhaus í Halle
16 febrúar 2007 |

09:42 Skóli, Noregur Höf: Sakki
|
Undanfarið hef ég eytt allnokkrum tíma í allt þetta heimasíðuvesen. Ég hef unnið í því að hanna sniðmát, reyna að skilja innri uppbyggingu TYPO3 og jafnframt að þýða kerfið yfir á Íslensku. Nú sýnist mér ég vera að ná markinu á öllum þessum hlutum, og þá tekur lesturinn við...
Já þeas. prófalesturinn. Fimmtudaginn 8. mars er munnlegt próf í Hebresku, hvorki meira né minna, og það eftir ekki nema nokkura mánaða nám. Við fáum svolítinn texta og 20 mínútur til að finna út úr honum. Því næst eigum við að lesa textann fyrir prófdómara, þýða textann yfir á norsku, og loks svara hverju því sem prófdómaranum dettur í hug að spurja um. Geti maður allt þetta stenst maður prófið.
Nú eru engir tímar í næstu viku, þannig að ég verð að sökkva mér ofan í hebreskuna.
shalom
Fara aftur á : Dagbók
|
 |
Engar færslur Enn sem komið er eru hefur enginn skrifað neitt hér. |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|