Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
14
mars
2008

  17:12       Skóli, Ísland, Noregur, Fjölskylda, Hihi, Kristindómur      

Höf: Sakki

Jæja, þá segir stundaskráin að það sé komið páskafrí. Samnemendur mínir eru flestir farnir heim til foreldra sinna, eða áleiðis í sumarbústað. Þeir sem eftir eru fara líklegst strax eftir helgi. Við hjónin ætlum hinsvegar að vera eftir hér.

Það eru svo sem margar ástæður fyrir því, en það segir sig auðvitað sjálft að konan getur ekki lengur ferðast langt. Hún er til dæmis komin langt yfir þann tíma þegar hún hefur leyfi til þess að fljúga, og langar bílferðir eða lestarferðir eru ekki vel séðar.

Við ætlum að hafa það huggulegt saman hér í íbúðinni okkar, borða páskalamb  á fimmtudag og vonandi komumst við líka í guðsþjónustu. Margrethe keypti bæði páskaliljur og tvo "páskadúka" í dag og hefur skreytt í búðina mjög vel. Kannski að ég skelli inn mynd á morgun, sem þýðir að ég geri það líklegast ekki. Ég nenni því allavega ekki núna.

Þetta verða fyrstu páskarnir mínir í Noregi og að þeim loknum hef ég haldið páska í fjórum mismunandi löndum. (svolítið stoltur af því)

Þótt svo að ég eigi að skila verkefni eftir einungis tvær vikur hef ég lofað því að nota ekki rauðu dagana til þess að læra. Ég verð víst að vinna því mun meir alla hina dagana. Það sem ég er að vinna í núna er mjög spennnadi og hlakka til þess að nota mestallan daginn uppi á bókasafni.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Engar færslur
Enn sem komið er eru hefur enginn skrifað neitt hér.
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti