Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Japönsku kirsuberjatrén fyrir utan gluggan eru loksins farin að blómstra. (Myndin er að vísu tekin í fyrra, þau líta eins út í ár)
06 maí 2008
17:32
Höf: Sakki
Ég er alveg hissa á því hvað maður getur orðið úrvinda af því að sitja úti í sólinni án þess að gera nokkurn skapaðan hlut...
Frá því að ég tók við kvöldvaktinni á skólanum um klukkan þrjú og þar til sólin settist um áttaleytið hef ég setið úti á lóð ásamt Margrethe og nokkrum vinum okkar. Við höfum varla gert nokkurn skapaðan hlut annað en að grilla og spjalla saman, en samt er ég algerlega úrvinda. Engu að síður er það ósköp yndælt að sitja úti í sólinni, og ef við getum tekið mark á veðurspánni lítur út fyrir að við getum gert hið sama alla næstu daga.
Margrethe er ennþá ólétt, eða möo: krakkinn er enn ekki fæddur. Við erum orðin svolítið óþolinmóð, en við verðum bara að bíða þar til hann er tilbúinn. Ég læt vita þegar eitthvað gerist.