Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Í dag er síðsti dagurinn fyrir lokapróf í PT (Practial Theology) sem er síðasti áfanginn í BA námi mínu í Guðfræði. Takist vel til get ég haldið áfram í mastersnámi strax í haust.
Það er erfitt að sitja hér uppi á lestrarsal á efstu hæð gamla skólans á Fjellhaug. Á hádegi í dag fór lofthitinn úti upp fyrir 28 stig á selsíuskvarða. Ég hugsa að ég þurfi ekki að taka fram að hér inni var ennþá heitara og milli tvö og sex var nærri ólíft. Nú er klukkan ellefu og aðstæður eru aðeins skárri, þótt svo að þær séu fyrir enga muni góðar. Ég sit með handklæði í fanginu og þurrka svitann úr enninu og af höndunum með fárra mínútna millibili. Kannski að ég ætti að leggja mig bráðum og þá helst útandyra.
Ég kvíði prófinu á morgun því þetta hefur af ýmsum ástæðum verið erfið önn. Ég tók próf í Hebresku á miðri önn sem þýðir auðvitað að öll önnur fög fengu litla athygli á þeim tíma. Stuttu eftir það próf hélt ég í mánaðar námsferðalag til Mongólíu og mestallur maímánuður fór í ýmsa hluti sem tilheyra vorinu, m.a. stórt skilaverkefni. Einungis síðustu daga hef ég fengið almeinilegt tóm til að læra og mér finnst árangurinn vera lítill. Ég vona þó að vel takist til.
Þið megið gjarnan muna eftir mér í bænum ykkar í kvöld og á morgun.