Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
08
apríl
2008

  03:52       Fjölskylda      

Höf: Sakki

Eins og ég hef sagt áður hefur konan mín verið mjög slæm af morgunógleði alveg frá því að hún varð ólétt. Þótt hún gubbi ekki á hverjum degi þá er henni óglatt frá morgni til kvölds. En nú styttist í að þetta taki sinn enda og krakkinn fái að líta dagsins ljós.

Okkur er gefin dagsetningin 4. maí og hafi krakkinn ekki látið heyra í sér tveimur vikum seinna verður hann tekinn með valdi. Það þýðir að ekki seinna en 18. maí mun konan halda á honum í fangi sínu.

Ég hef tekið eftir því að það er ýmislegt sem þarf að vera búið að gera áður en krakkinn kemur. Ég þarf að mála bæði svefnherbergið okkar og baðherbergið. Ef færi gefst langar mig líka að leggja gólf á svefnherbergið. Það þarf að kaupa, fá lánað eða jafnvel gefið allskonar útbúnað, fatnað, sápur, krem, bleyjur og ýmislegt annað. Að ákveðnu marki minnir þetta á brúðkaupsundirbúninginn fyrir ári síðan.

Nú er mestu af þessu lokið og við bíðum bara spennt eftir að sjá krakkan okkar. Mér þætti meira að segja ágætt ef hann flýtti sér aðeins.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Marisa | laugardagur, 12-04-08 19:57
Hi Sakki!

I saw Jón´s mom on here today actually, and saw that we grace your links. Emoticon So...I guess that means that since you keep up on us we should keep up on you! Emoticon
I know I don´t know you yet, but Jón only has positive things to say about you, and there is nobody´s judgement I trust more than his.

Well, man...expect to be stalked! Emoticon

-Marisa
sigga systir | föstudagur, 18-04-08 03:23
Oh.. það verður svo gaman að fá að sjá litla krílið ykkar!!.. svo spennandi! Emoticon
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti