|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
 Þar sem ég tel kannski ekki við hæfi að setja inn mynd frá ómskoðuninni, er hér þess í stað mynd af gömlum bókum í Weissenhaus í Halle, Þýskalandi (augljós tengsl við fornleifafræðina)
29 nóvember 2007 |

12:08 Skóli, Fjölskylda Höf: Sakki
|
Langt síðan síðast. Í dag hef ég tvær góðar fréttir að færa. Báðar komu í dag, en annarar þeirra hef ég reyndar vænst nokkuð lengi.
Svo ég byrji á hinni minni af fréttunum tveimur fékk ég í dag A í fornleifafræði gamla testamentisins. Ég er eiginlega svolítið hissa á að verkefnið gekk svona vel, þar sem ég veit um allavega tvö til þrjú atriði sem ég vildi að ég hefði gert betur. Sérstaklega voru tvö nöfn sem ég vildi að ég hefði nefnt, sem ég gerði ekki. En, maður kvartar nú ekki yfir að fá hærri einkunn en vonast var eftir.
Seinni fréttin er mun betri, og hlýtur það að þýða að hún sé alveg sérstaklega góð. Jú það er nefnilega þannig að konan mín var í ómskoðun í dag, og í ljós kom að hin væntanlega fjölskylduaukning var í góðu formi... Já, það er rétt: Við eigum von á barni í byrjun maí á næsta ári.
Mig hefur í raun langað að skrifa þetta hér alveg frá því að við fyrst vissum um þetta, en ég neyddist til að lofa að skrifa ekkert fyrr en eftir ómskoðunina.
Fara aftur á : Dagbók
|
 |
Styrmir | fimmtudagur, 29-11-07 15:58
Hjartanlega til hamingju með það bæði tvö.
|
Ásgeir | fimmtudagur, 29-11-07 16:16
Til hamingju! gaman að heyra frá þér.
|
Sakki | sunnudagur, 02-12-07 04:12
Jú, þakka ykkur fyrir það. Alltaf gaman að sjá að einhver les þetta hjá mér.
|
| |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|