Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
22
mars
2007

  13:03       Kristindómur      

Höf: Sakki

Biblían greinir skýrt frá því að ekki allir komast inn í himinn Guðs. Dyr himins eru einungis opnar fyrir þeim sem játa Jesú Krist sem frelsara sinn. Fyrir öllum öðrum eru dyr himins lokaðar. Sá sem veit þetta og trúir því hlýtur að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að segja sem allra flestum frá. Hvernig getur maður með góða samvisku horft upp á vini sína, ættingja, stafsfélaga, nágranna, landsmenn eða hvern sem er annan, ganga beint til glötunar?

Ég legg við YouTube myndskeið sem tekið er af heimasíðunni wayofthemaster.com Myndskeiðið er stytt útgáfa af viðtali sem tekið var við trúleysingja nokkurn. Ekki ber á öðru en að afstaða hans sé ávöxtur ítarlegrar umhugsunar og vangavelta. Hann stendur fast við sína skoðun á tilvist Guðs, en hefur einnig mjög athyglisverðar skoðanir varðandi kristindóminn.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Maggi Hilmars | þriðjudagur, 18-09-07 12:21
Gott viðtal. Þótt þessi náungi segist vera guðlaus þá hefur hann hreinskilnari afstöðu til Biblíunnar en margir sem kalla sig kristna. Og hann vitnar meira í Guðs orð en margir kristnir gera. Að vera kristinn þýðir að fylgja Kristi og elska hann og trúa því sem hann segir. Þótt þessi einfaldi sannleikur vefjist fyrir mörgum er þessi náungi greinilega ekki í þeim hópi.
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti