Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
Síðustu daga hefur hitinn farið upp í 16-18 stig. Þá er gott að geta sest út á svalir.
22
apríl
2008

  07:01       Fjölskylda      

Höf: Sakki

Síðustu daga hefur ýmislegt gerst. Á meðan við höfum verið að mála og veggfóðra á svefnherberginu og baðherberginu hefur Margrethe þurft að eyða nokkrum tíma uppi á sjúkrahúsi...

Þannig var mál með vexti að Margrethe fékk skyndilgan kláða á fimmtudainn var. Þegar hann ætlaði ekkert að minnka með deginum hringdum við upp á sjúkrahús og við vorum strax beðin um að koma uppeftir. Þar voru teknar nokkrar blóðprufur, sem og hjartalínurit af krakkanum. Niðurstaðan var nokkuð sem heitir meðgöngukláði og stafar af bilun í lifrinni. Enn sem komið er eru viðbröðin mjög væg, og ekki hættuleg, en við eigum að mæta í nýja prufu á föstudaginn kemur.

Á meðan við bíðum eftir þessarri nýju prufu hefur veðrið leikið við okkur. Sólin hefur skinið frá morgni til kvölds frá því fyrir helgi. Hitinn hækkar með hverjum degi og nú í gær fór hann upp í 18 stig. Þetta litla vorkast er sem sagt hlýrra en íslenskt sumar (Eins og fram kemur í þessari skemmtilegu frétt)

Á laugardag kláraði ég líka lítið verkefni sem ég byrjaði á fyrir nokkru síðan. Ég er búinn að mála svefnherbergið og setja veggfóður á einn vegg. Þar að auki hef ég málað alla veggina á baðherberginu.

Er þetta ekki flott?

 


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Hlínza frænka | þriðjudagur, 22-04-08 13:26
Sæll frændi! Ég var rétt að uppgötva síðuna þína aftur (enda ekkert betra að gera í prófum en hanga á netinu). Svefnherbergið er ótrúlega flott, svo hlakka ég bara mikið til að sjá myndir af barninu. Vonandi verður þessi meðgöngukláði ekki of slæmur... hlakka til að lesa meira.
Kv. Hlín
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti