Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Þá er sumarið liðið og ég hef ekki skrifað eina einustu frétt síðan sautjánda júní. Ég hef tekið eftir því að ég nota netið afar lítið þegar ég ekki þarf að nota tölvuna við önnur verkefni (þ.e. skólann). Á sumrin er ýmislegt annað sem er mikilvægara. Sumarið í ár hefur ekki verið nein undantekning á því. Margt hefur gerst hjá mér þessar síðustu vikur og mig langar að segja frá nokkrum þessara hluta.