|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
29 október 2008 |

16:45 Noregur, Hihi Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá er fyrsti snjór þessa vetrar fallinn. Hann er snemma á ferðinni í ár, og reyndar svo snemma að trén eru ekki enn búin að fella laufið. Þ.e. ekki öll. Þótt svo að sum tré hafi misst allt laufið fyrir löngu síðan eru þó enn tré sem eru nærri því alveg græn. Þetta er skemmtileg samansetning, sem ég hef ekki upplifað áður.
Myndina tók ég frá veröndinni okkar um hádegisbil í dag.
|
 |
14 mars 2008 |

17:12 Skóli, Ísland, Noregur, Fjölskylda, Hihi, Kristindómur Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá segir stundaskráin að það sé komið páskafrí. Samnemendur mínir eru flestir farnir heim til foreldra sinna, eða áleiðis í sumarbústað. Þeir sem eftir eru fara líklegst strax eftir helgi. Við hjónin ætlum hinsvegar að vera eftir hér.
|
 |
18 febrúar 2008 |

08:04 Noregur, Fjölskylda, Skóli 7 athugasemdir
|
 Það er orðið mjög langt síðan ég skrifaði nýja færslu hér á netdagbókinni, þannig að nú kemur ein mjög löng færsla til að bæta það upp.
|
 |
17 október 2007 |

05:11 Noregur Ein athugasemd
|
 Íslendingar vilja meina að hið Íslenska vatn sé það hreinasta og besta í heimi. Sama er sagt um hið íslenska kókakóla, og þá er einmitt bent á þá staðreynd að það inniheldur hið íslenska vatn. Samskonar fullyrðingar eru uppi á teningnum í noregi varðandi hið norska vatn. En það getur ekki verið, því í dag kom tilkynning frá vatnsveitunni um að sjóða þurfi drykkjarvatn í að minnsta kosti þrjár mínútur.
|
 |
21 ágúst 2007 |

04:57 Ísland, Noregur, Fjölskylda, Brúðkaup Engar athugasemdir
|
 Þá er sumarið liðið og ég hef ekki skrifað eina einustu frétt síðan sautjánda júní. Ég hef tekið eftir því að ég nota netið afar lítið þegar ég ekki þarf að nota tölvuna við önnur verkefni (þ.e. skólann). Á sumrin er ýmislegt annað sem er mikilvægara. Sumarið í ár hefur ekki verið nein undantekning á því. Margt hefur gerst hjá mér þessar síðustu vikur og mig langar að segja frá nokkrum þessara hluta.
|
 |
10 mars 2007 |

13:35 Noregur, Pirringur Engar athugasemdir
|
 Þetta reddast nú einhvern veginn segir Íslendingurinn, hristir höfuðið kæruleysislega og brosir út í annað. Norðmaðurinn sem situr hinu meginn við borðið horfir stórum augum á þennan furðulega náunga og spyr með sjálfum sér: Hvað á það eiginlega að þýða? Er virkilega hægt að redda málunum? Þarf ég þá ekki að hafa endalausar áhyggjur af öllu mögulegu í lífi mínu?
|
 |
18 febrúar 2007 |

09:42 Ísland, Noregur Engar athugasemdir
|
 Það er gott að vera Íslendingur í Noregi. Sem Íslendingur kann ég eldri og betri útgáfu af norskunni en nokkur norðmaður, nefnilega Íslensku (sem er kölluð gammelnorsk í norskum skólum). En það eru fleiri fríðindi. Til dæmis hafa norðmenn bolludag á sunnudegi, en við Íslendingar á mánudegi. Þess vegna fær Íslendingur í Noregi tvo bolludaga.
|
 |
16 febrúar 2007 |

09:42 Skóli, Noregur Engar athugasemdir
|
 Undanfarið hef ég eytt allnokkrum tíma í allt þetta heimasíðuvesen. Ég hef unnið í því að hanna sniðmát, reyna að skilja innri uppbyggingu TYPO3 og jafnframt að þýða kerfið yfir á Íslensku. Nú sýnist mér ég vera að ná markinu á öllum þessum hlutum, og þá tekur lesturinn við...
|
 |
| |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|