Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
18
ágúst
2008

  05:23       Skóli, Fjölskylda       Ein athugasemd

Jæja, þá er skólinn byrjaður á ný og tölvan tekin fram úr geymslu. Ég nota internetið afar lítið á sumrin og þar af leiðandi verður lítið úr bloggsíðunni. Mér þykir við hæfi að hefja veturinn á því að segja frá sumrinu

14
mars
2008

  17:12       Skóli, Ísland, Noregur, Fjölskylda, Hihi, Kristindómur       Engar athugasemdir

Jæja, þá segir stundaskráin að það sé komið páskafrí. Samnemendur mínir eru flestir farnir heim til foreldra sinna, eða áleiðis í sumarbústað. Þeir sem eftir eru fara líklegst strax eftir helgi. Við hjónin ætlum hinsvegar að vera eftir hér.

18
febrúar
2008

  08:04       Noregur, Fjölskylda, Skóli       7 athugasemdir

Það er orðið mjög langt síðan ég skrifaði nýja færslu hér á netdagbókinni, þannig að nú kemur ein mjög löng færsla til að bæta það upp.

06
desember
2007

  15:21       Skóli, Tölvumál, Kristindómur       Ein athugasemd

Eins og margir vita er orðið "logos" gríska og þýðir í flestum tilfellum bara "orð". En það er ekki það sem ég er að hugsa með þessari yfirskrift. Ég er nefnilega að velta fyrir mér hvort að ég ætti að fjárfesta í forriti sem heitir Logos.

29
nóvember
2007

  12:08       Skóli, Fjölskylda       3 athugasemdir

Langt síðan síðast. Í dag hef ég tvær góðar fréttir að færa. Báðar komu í dag, en annarar þeirra hef ég reyndar vænst nokkuð lengi.

06
júní
2007

  16:41       Skóli       Engar athugasemdir

Í dag er síðsti dagurinn fyrir lokapróf í PT (Practial Theology) sem er síðasti áfanginn í BA námi mínu í Guðfræði. Takist vel til get ég haldið áfram í mastersnámi strax í haust.

22
febrúar
2007

  14:22       Skóli       Engar athugasemdir

Nú hef ég setið á rassinum í allan dag og reynt að lesa fyrstu Mósebók á hebresku. Fyrsta Mósebók er sannarlega ekki það erfiðasta sem Biblían hefur upp á að bjóða, en nógu erfitt er það nú samt. Hraðinn hjá mér er svona einn kafli á þremur klukkutímum. Ég finn að óttinn kemur yfir mig vegna prófa eftir einungis tvær vikur.

16
febrúar
2007

  09:42       Skóli, Noregur       Engar athugasemdir

Undanfarið hef ég eytt allnokkrum tíma í allt þetta heimasíðuvesen. Ég hef unnið í því að hanna sniðmát, reyna að skilja innri uppbyggingu TYPO3 og jafnframt að þýða kerfið yfir á Íslensku. Nú sýnist mér ég vera að ná markinu á öllum þessum hlutum, og þá tekur lesturinn við...