Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Eins og sumir vita er ég afar sólginn í chilipipar og nærri því allt sem vel er kryddað með honum. Þetta veit konan mín vel, og þess vegna keypti hún nokkra chiliávexti handa mér snemma í sumar. Mér datt í hug að kippa nokkrum fræum til hliðar og sjá hvort að ég gæti ræktað minn eigin pipar.
Núna í gær byrjuðu fyrstu blómin að springa út. Mér skilst að það sé nokkur kúnst að fá þessi blóm til að bera ávöxt úr því að býflugur eru fágætar innandyra. Í þeirra stað er hægt að nota eyrnapinna, og færa frjókornin milli blómanna. Við skulum sjá hvernig það gengur þegar fleiri blóm eru sprungin út.