Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
19
september
2008

  18:00       Hihi      

Höf: Sakki

Eins og margir vita eru íþróttir í óhófi ekki heilsusamlegar. Margir atvinnumenn í handbolta, fótbolta og öðrum krefjandi íþróttum eyðileggja liði og bein og sumir enda jafnvel í hjólastól. En hér er íþrótt sem sprengir öll bönd.

Þríþrautin Ironman er haldin á Hawaii einu sinni á ári.  Keppendur stilla upp og synda fyrst tvær og hálfa mílu, eða tæpa fjóra kílómetra. Að þessu loknu setjast þeir upp á reiðhjól og fara ekki af því fyrr en þeir hafa hljólað um 180 kílómetra. Eins og að þetta væri ekki nóg, ljúka þeir þríþrautinni á því að hlaupa maraþon, sem er 42 kílómetrar. (Sjá heimasíðu IronMan)

Heimsmetið er í höndum Belga sem kláraði þríþrautina á rétt rúmum átta tímum. Það þýðir að hann hefur þurft að halda meðalhraða upp á næstum því 30 km/klst. Til viðmiðunar tæki tæplega tvo og hálfan tíma að keyra leiðina ef maður fer ekki  yfir íslenskann hámarkshraða.

Ég sá þetta í sjónvarpinu rétt áðan. Þá var sýnt frá endaspretti í kvennaflokki. Konurnar voru nokkuð illa á sig komnar þegar þær komu í mark og sumar hverjar hrundu saman rétt fyrir marklínuna. Ein af þeim tók sig til og skreið í mark... Því miður tókst mér ekki að finna nákvæmnlega þetta myndskeið á youtube, en ég fann eitt svipað. Ég skelli því með hér að neðan.


Fara aftur á : Eldri færslur
Athugasemdir
Bryan Allen Smith III | mánudagur, 20-10-08 20:45
Þetta er einmitt eitt af því sem að mér langar að gera á lífsleiðinni
Bryan Allen Smith III | mánudagur, 20-10-08 20:46
Og vissir þú að það er til 10 faldur Iron man!!!
Sakki | fimmtudagur, 06-11-08 02:45
Ekki vissi ég það. Hvað þýðir að hann er 10-faldur? Varla getur það þýtt að maður byrjar upp á nýtt 9 sinnum. Ég get hreinlega ekki trúað því að nokkur maður ráði við það.
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti