|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
 Afraksturinn: Margar krukkur af eplamauk og þó nokkur epli afgangs.
25 september 2008 |

14:14 Fjölskylda, Hihi Höf: Sakki
|
Jæja þá er haustið komið og því fylgja ýmis haustverk. í gær týndi ég tvo burðarpoka af eplum og bjó til eplamauk.
Það ætti alls ekki að vera erfitt. Allt sem maður á að gera er að flysja eplin og taka út kjarnahúsin, setja þau í vatn og sjóða. Eftir nokkra suðu getur maður bætt við sykri eftir þörf. En einhverja hluta vegna virkaði þetta ekki alveg svona vel hjá mér. Eplin maukuðust að vísu en kannski allt of vel, því maukið varð allt allt of þunnt. Ætli ég veriði ekki að nota minna vant næst.
En að öðru. Meðan ég var að skrifa þetta innlegg lét Markús heyra í sér. Við erum nýbúinn að leggja hann og hann var greinilega ekki alveg sofnaður. Þegar ég kom inn á herbergi til hans verð ég að segja að hann hafi komið mér að óvörum. Hann var búinn að sparka af sér sænginni sem er alls ekki óvenjulegt. En að þessu sinni lét hann það ekki nægja heldur hafði hann snúið sér 180 gráður. Ekki yfir á magan, heldur þannig að hann snéri öfugt í rúminu. Ég skil ekki hvernig hann fór að því, vegna þess að rúmið er nokkuð mjótt. Ætli ég verði ekki að taka þessu sem merki þess að hann er að þroskast.
Fara aftur á : Eldri færslur
|
 |
Ásgeir | fimmtudagur, 25-09-08 20:22
180 gráður? Hljómar eins og hann sé að þroskast og verða að köngulóarmanninum!
|
Sakki | föstudagur, 26-09-08 14:01
Já ég er vanur að syngja fyrir hann: "Spiderkid, spiderkid, does whatever a spiderkid does. Can he swing from a web? No he can't, he's a kid. Oooo watch out, he's the spiderkid"
|
Axel | mánudagur, 29-09-08 19:18
hehe han rörde sig inte mycket när jag var där i alla fall - hälsar til Margerethe och Markus
|
Tinna Rós | mánudagur, 06-10-08 16:35
Ji hvað þú ert mikill pabbi....kjút 
Vildi annars bara láta þig vita að ég væri búin að finna bloggið þitt (enda næstum því rannsóknarlögreglumaður....múhahahaha) og kíki á þig reglulega
|
| |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|