Loksins er sökudólgurinn fyrir "fjárhagskreppunni" svokölluðu fundinn. Það voru útrásarvíkingarnir í bönkunum. Og þó.. Kannski var það seðlabankastjórinn. Nei, ekki var það hann. Það var forsætisráðherra Bretlands. Íslenska ríkið ætti að fara í mál við hann og fá hann til að borga brúsann. Svo getum við ort níð um hann.... eða?
Af hverju þurfum við endilega að hafa sökudólg? Af hverju getum við ekki litið í eigin barm? Erum við svo fullkomin að einvher annar hlýtur að hafa gert allan óskundann? Eða erum við bara að réttlæta okkur sjálf?
Í langann tíma höfum við keypt allt mögulegt sem við þurfum ekkert á að halda: t.d. sjónvarpstæki, tölvur, bíla, hljómflutningstæki, stærri íbúð, staðsetningartæki, mp3-spilara, farsíma o.fl. Ef við eigum ekki peninga hér og nú höfum við bara borgað með yfirdráttarheimildinni, vísa raðgreiðslum eða jafnvel skammtímaláni frá bankanum. Við hömstrum alls konar drasl og skuldsetjum okkur upp fyrir haus, frekar en að nota góðærið til þess að borga niður þær skuldir sem við þegar höfum. Getum við dæmt "ríku" og háu herrana fyrir að gera nákvæmnlega hið sama, þótt svo að þeir geri það í stærri stíl?
Er ekki kominn tími til þess að við lítum í eigin barm og viðurkennum að við höfum gert eitthvað rangt? Eða beita örlítillri sjálfsgagrýni? Er ekki kominn tími til að hætta að kenna öðrum um og taka auðmýkingunni? Ef við viljum eiginlegt frelsi verðum við að líta til þess sem varir lengur en peningarnir og lengur en lífið sjálft. Ég er auðvitað að tala um frelsið í Jesú Kristi.
Hjá Jesú er engin þrotaskipting eða niðurgreiðslur, einungis náð og fyrirgefning. Þegar Jesús hefur fyrirgefið er engin þörf á því að endurgreiða skuldina. Það er hvort sem er ekki mögulegt því skuldin hjá honum væri svo há að við ættum aldrei nokkurn sjens. Nei, þegar Jesús fyrirgefur tekur hann skulinda sjálfur og greiðir hana, ekki með peningum, gulli og silfri, heldur með sínu eigin blóði. Hann hefur þegar greitt hana með dauða sínum. Ef við rembumst með skuldir sem við ekki getum greitt glötumst við. Bara ef vil leyfum Jesú að taka skuldina verðum við raunverulega frjáls.
Fara aftur á : Eldri færslur
|