Jæja, þá er skólinn byrjaður á ný og tölvan tekin fram úr geymslu. Ég nota internetið afar lítið á sumrin og þar af leiðandi verður lítið úr bloggsíðunni. Mér þykir við hæfi að hefja veturinn á því að segja frá sumrinu
Eins og ég hef nefnt áður var Markús, sonur okkar, skírður þann 29. júní 2008. Við áttum frábæran dag. Það var gott veður og við gátum boðið gestunum upp á grillveislu og kökuhlaðborð. Úr því að skólinn var kominn í sumarfrí gátum við notað setustofuna þar og það fór mjög vel um okkur. Svenni og Aníta samþykktu að vera skírnarvottar, að til viðbótar fengum við Andreu og Magnús, vinafólk Margrethe. Markús hefur þá fjóra skírnarvotta, en okkur þætti auðvita vænt um ef sem flestir vildu muna eftir honum í bænum sínum.
Vegna Markúsar höfum við varið sumrinu heima. Nýr skólastjóri tók við í byrjun ágúst. Þá flutti hann inn í íbúð gamla skólastjórans og ég hef haft vinnu við að gera hana upp í millitíðinni. Íbúðin er mjög stór og ég hef getað unnið frá morgni til kvölds án þess þó að geta klárað (Þ.e. ég var auðvitað ekki einn).
Þrumuveður hefur verið óvenju algengt í sumar, kannski vegna þess að það hefur verið óvenju hlýtt. (Oft um 30 stiga hiti, dögum saman). Núna nýlega sló eldingu niður í girðingu þar sem um 100 manns voru að horfa á rallý. Rúmlega helmingur þeirra slasaðist. Hér á Fjellhaug hefur slegið niður tvisvar í sumar og í bæði skiptin urðu miklar skemmdir. Viðgerðirnar eiga eftir að kosta fleiri miljónir íslenskra króna, en sem betur fer verður það tryggingafélagið sem borgar.
Síðustu daga hef ég haft frí frá vinnunni og getað verið heima með konu og barni. Markús vex og þroskast. Hann er farinn að nota hendurnar til þess að grípa og hrista leikföngin sín. Þegar hann liggur á maganum getur hann núna lyft bæði bringunni og rassinum, þannig að það er örugglega ekki langt þar til hann fer að skríða. Krakkinn er hinn hraustasti en við foreldrar hans höfum nælt okkur í leiðinlegt kvef fyrir um viku síðan og hóstum upp grænu slími. (Fremur ógeðfellt). Vonandi endist það nú ekki lengi.
Sjálfur er ég komin nær þrítugu en tvítugu og byrjaður að fá grátt hár. Ég fagna þessari breytingu og lít á hana sem sýnilegan þroska.
Fara aftur á : Eldri færslur
|