|
|
|
Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
RSS gagnaveita
|
|
18 desember 2007 |

07:31 Ísland, Kristindómur Engar athugasemdir
|
 Ný ensk biblíuþýðing (NET - New English Translation) kom út fyrir nokkrum árum, með endanlegri útgáfu árið 2005. Fyrir þá sem ekki eru hrifnir af nýju íslensku þýðingunni mæli ég eindregið með þessari. Ekki nauðsynlega venga sjálfrar þýðingarinnar heldur vegna þess að með henni fylgja nákvæmar lýsingar á hvernig valið var milli mikilvægra atriða, nokkuð sem gefur lesandanum meiri skilning á fjölbreytileika frumtextans.
|
 |
15 desember 2007 |

14:24 Ísland, Tölvumál Engar athugasemdir
|
 Um daginn var mér litið inn á íslenska hlið alfræðiorðabókarinnar Wikipedia. Ég fletti upp nokkrum orðum eins og Biblían, Jesús og kristni. Greinunum er augljóslega mjög ábótavant, og gaman væri að setja saman hóp sem hefði það hlutverk að endurbæta þær.
|
 |
07 desember 2007 |

08:25 Ísland, Kristindómur Engar athugasemdir
|
 Ný þýðing á biblíunni leit dagsins ljós í miðjum október og heimasíða þessarar þýðingar opnaði fyrsta nóvember. Þýðingarnefnd hefur augljóslega vandað sig við verkið og fylgt sínum hugsjónum. Hvort að hugsjónirnar eru réttmætar er önnur spurning og helst þyrfti að meta kosti þeirra og galla opinberlega. Hér ætla ég hinsvegar að benda á örfáa almenna erfiðleika við að þýða biblíuna.
|
 |
06 desember 2007 |

15:21 Skóli, Tölvumál, Kristindómur Ein athugasemd
|
 Eins og margir vita er orðið "logos" gríska og þýðir í flestum tilfellum bara "orð". En það er ekki það sem ég er að hugsa með þessari yfirskrift. Ég er nefnilega að velta fyrir mér hvort að ég ætti að fjárfesta í forriti sem heitir Logos.
|
 |
03 desember 2007 |

15:29 Tölvumál, Pirringur Engar athugasemdir
|
 Ég fæ reglulega tölvupóst sem inniheldur alls konar rusl. All frá tilboðum um læknisaðgerðir og lyf að hygmyndum um hvernig hægt er að verða ríkur á stuttum tíma. Ég átti þó ekki von á því að sjá þennan boðskap á minni eigin heimasíðu.
|
 |
| |
|
|
|
|
Copyright © 2001-2008 Sakarías Ingólfsson
|
|
|