Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist
ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og
legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.
Í gær var hann Markús okkar tveggja vikna gamall. 13 maí rétt fyrir 13 kom hann í heiminn og þann dag breyttist líf okkar foreldranna til allrar frambúðar. Mig hafði aldrei grunað hversu mikið stökk það var þegar fyrsti fjölskylduaukinn kom.
Jæja, þá get ég loksins sagt frá því að ég hef eignast lítinn strák. Hann var við fæðingu 56 cm langur og 3,9 kíló (þ.e. tæplega 16 merkur fyrir þá sem skilja slíkt). Hann er ljósbrúnn og með heilmikið dökkt hár. Í dag fékk hann loksins að koma heim með mömmu og pabba.