Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Ţangađ fluttist ég áriđ 2003 og ćtlađi ađeins ađ vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkađi noregur og ég varđ eftir og legg nú stund á mastersnám í Guđfrćđi. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og viđ eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
23
mars
2008

  12:12       Fjölskylda, Kristindómur       Engar athugasemdir

Jćja, ţá er runninn upp páskadagur. Ég og Margrethe höfum veriđ heima í Osló til ţessa og haft ţađ mjög gott. Einar, vinur okkar, kom í heimsókn á skírdag og viđ snćddum saman páskalamb.

Föstudaginn langa vöknuđum viđ upp viđ nýfallinn snjó. Hingađ til hefur veriđ mjög hlýtt í vetur og nú eru laufin farin ađ springa út á trjánum. Vonandi hefur ţessi skyndilega snjókoma ekki vond áhrif á voriđ. Sumstađar í Suđur-Noregi snjóađi nćrri ţví hálfum meter ţessa einu nótt, ţannig ađ ţetta kom mjög á óvart.

Í dag fórum viđ í guđsţjónustu í kristnibođssalnum niđri í bć. Ég gleymi ţví stundum, en kristnibođssalurinn er fyrst og fremst söfnuđur nemenda og annara sem búa bara stuttan tíma í Osló. Ţessvegna er fremur fámennt um jól, páska og ađrar stórhátíđir, ţegar nemendur fara heim. Samkoman í dag var engin undantekning og var salurinn ekki einu sinni hálfur.

Nú bráđum ćtlum viđ ađ borđa páskakvöldverđ (hreindýr) og svo förum viđ í heimsókn til mágkonu minnar, ţar sem bođiđ verđur upp á kaffi og köku. Ţetta er bara nćstum ţví eins og á jólunum.

--

Páskarnir ćttu ađ sjálfsögđu ađ vera stćrsta hátíđ okkar kristinna manna. Samt sem áđur fellur innihald ţeirra oftar í gleymsku en innihald jólanna. Viđ meigum ekki gleyma ţví ađ páskum fyrir tćplega 2000 árum síđan dó Jesús Kristur á krossinum og tók á sig öll okkar illskuverk, mistök og ranglćti. Hans vegna getum viđ hlakkađ til en stćrri hátíđar á himnum. [Sjá áfram: Um frelsarann]

14
mars
2008

  17:12       Skóli, Ísland, Noregur, Fjölskylda, Hihi, Kristindómur       Engar athugasemdir

Jćja, ţá segir stundaskráin ađ ţađ sé komiđ páskafrí. Samnemendur mínir eru flestir farnir heim til foreldra sinna, eđa áleiđis í sumarbústađ. Ţeir sem eftir eru fara líklegst strax eftir helgi. Viđ hjónin ćtlum hinsvegar ađ vera eftir hér.