09 janúar 2010 |

05:49 Noregur Engar athugasemdir
|
 Það hefur verið kallt hér í Osló síðustu vikur og daga. Fyrir jól fór frostið rétt niður fyrir tíu stig. Nú eru um 18 stig hér fyrir utan. Því miður hitaveita varla til hérlendis, og miðstöðin í húsinu ekki mjög kröftug. Ofnarnir í íbúðinni verða varla meir en hálfvolgir. Þar að auki mættu dyr og gluggar vera þéttari. Til þess að ná hitanum upp eina eða tvær gráður höfum við brugðið á það ráð að kveikja á kertum. Það hjálpar meir en mig hefði grunað, og svo gefur það notarlega stemmingu. Nú helst hitastigið við uþb. 17-19 gráður.
Við erum auðvitað mjög þakklát fyrir að hafa það svona hlýtt. Margir hér í landi kynda hús sín með eldivið. Byrgðirnar af honum eru að klárast út um allt og eftir einungis nokkra daga verður ekkert eftir. Það tekur tíma að höggva nýjan við og þurrka hann þannig að það er of seint að byrja á því núna. Eina vonin fyrir þetta fólk er að hægt sé að flytja inn nægilegt magn á stuttum tíma. Þ.e. eða að kynda með rafmagni, en margir hafa ekki efni á því. Sérstaklega ekki ellilífeyrisþegar.
|
 |
26 október 2009 |

07:36 Ísland, Noregur, Ferðadagbók, Pirringur 2 athugasemdir
|
 Það lítur út fyrir að ég hafi fengið í mig þessa leiðindaveiru þegar ég var á Íslandi, því um leið og ég kom heim veiktist ég, trúlega með svínaflensu. Nú er hún nú farin að hjaðna vel og sem betur fer hefur hvorki konan né krakkinn smitast. Þá má svo sem sjá þetta frá björtu hliðinni: ég hef fengið nokkra auka daga í frí. Á hinn bóginn er ég nú eiginlega orðinn leiður á að hanga einn heima.
|
 |
13 október 2009 |

05:53 Ísland, Noregur, Hihi Engar athugasemdir
|
 Sem Íslendingur búsettur í Noregi eru að sjálfsögðu einhverjar persónur og hlutir sem ég sakna. Það væri t.d. gaman að hafa fjölskylduna og nokkra gamla vini hérna. Fyrir utan fólk sem ég þekki er það næstum því bara einstakar matvörur sem ég sakna, og smám saman er alltaf að batna í því.
|
 |
09 október 2009 |

16:51 Noregur, Skóli, Hihi Engar athugasemdir
|
 Ég veit ekki hvort að ég hef sagt frá mínu nýjasta áhugamáli, en það er nokkuð sem ég hef fengið í kaupbæti með vinnunni. Fyrir rúmu ári síðan tók ég þátt í ritsjórn jólablaðs skólans, og í framhaldi af því var mér gefin aðalábyrgð með blaðinu. Nú hef ég staðið að baki fjórum tölublöðum og ég verð að segja að þetta verður bara skemmtilegra og skemmtilegra.
|
 |
13 júlí 2009 |

08:50 Noregur, Kristindómur Engar athugasemdir
|
 Síðastliðinn miðvikudag til sunnudags var kristniboðsþing NLM, norska kristniboðssambandsins, haldið í Bergen. Ólíkt SÍK er þetta þing einungis haldið á þriggja ára fresti, og þess vegna er alltaf mikil eftirvænting. Ég ákvað að skrifa svolítið um þingið og okkar upplifun af því.
|
 |
19 júní 2009 |

03:54 Ísland, Noregur, Fjölskylda 3 athugasemdir
|
 Jæja, þá kemur smá uppfærsla efir allnokkra bið. Ég hef að venju einhverjar fréttir bæði af Markúsi litla og af okkur sjálfum.
|
 |
20 mars 2009 |

06:04 Noregur, Fjölskylda 5 athugasemdir
|
 ... jafnvel þótt að það hafi nú liðið nokkuð langur tími frá því að ég skrifaði nokkuð síðast og ég ætla ekkert að lofa neinum bótum. Hinsvegar get ég sagt svolítið frá því sem hefur gerst síðan síðast.
|
 |
23 desember 2008 |

09:35 Ein athugasemd
|
|
Við viljum óska ykkur öllum gleilegra jóla og Guðs blessunar á nýju ári.
Sakarías, Margrethe og Markús
|
 |
06 nóvember 2008 |

02:23 Fjölskylda 4 athugasemdir
|
 Ég verð að viðurkenna að ég er allt of lélegur að segja frá Markúsi hér á síðunni. Konan mín er heldur duglegri að skrifa og þar að auki hleður hún reglulega inn myndum á síðuna sína. En hér kemur þó ein mynd og örlitlar fréttir af stráknum.
|
 |
29 október 2008 |

16:45 Noregur, Hihi Engar athugasemdir
|
 Jæja, þá er fyrsti snjór þessa vetrar fallinn. Hann er snemma á ferðinni í ár, og reyndar svo snemma að trén eru ekki enn búin að fella laufið. Þ.e. ekki öll. Þótt svo að sum tré hafi misst allt laufið fyrir löngu síðan eru þó enn tré sem eru nærri því alveg græn. Þetta er skemmtileg samansetning, sem ég hef ekki upplifað áður.
Myndina tók ég frá veröndinni okkar um hádegisbil í dag.
|
 |
| |