Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
06
nóvember
2008

  02:23       Fjölskylda      

Höf: Sakki

Ég verð að viðurkenna að ég er allt of lélegur að segja frá Markúsi hér á síðunni. Konan mín er heldur duglegri að skrifa og þar að auki hleður hún reglulega inn myndum á síðuna sína. En hér kemur þó ein mynd og örlitlar fréttir af stráknum.

Það er merkilegt fyrir ungan pabba að horfa á strákinn sinn vaxa og þroskast, svo hratt að ég get séð mun frá degi til dags. Það eru allnokkrir dagar síðan hann lærði að snúa sér frá bakinu og yfir á magan. Hann rúllar sér í báðar áttir (hægri og vinstri) en kemst sjaldan aftur yfir á bakið.  Þegar það þó hefur tekist, bregður honum svo mikið að hann fer að skæla.

Í fyrradag tók Markús flöskuna sína sjálfur, náði að koma snuðinu upp í sig og drekka án aðstoðar. Það var greinilega mikið afrek því nú vill hann alltaf hjálpa til, eða jafnvel borða sjálfur. Mér finnst nokkuð merkilegt hvað þetta gerðist skyndilega. Fram að þessu höfum við alltaf matað hann, en svo einn daginn vil hann gera það sjálfur.

Annað sem gerðist nýlega er að han reynir að koma fótunum undir sig þegar við höldum á honum. Ef hann fær einhverja mótstöðu fyrir fæturna spyrnir hann í af öllum kröftum. Ég hugsa að það verði ekki langt þar til hann stendur sjálfur í fæturna.

Fleiri myndir: margrethe.wordpress.com

 


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Axel | þriðjudagur, 18-11-08 05:02
Vá, va stor han har blivit.
Giske | fimmtudagur, 20-11-08 06:53
Ey, jeg kan lese islandsk jo! Ny oppdagelse for meg :-D Det er jo nesten norsk jo!
John Daniel Rebba | mánudagur, 24-11-08 19:50
Dear Markus in Christ,
Greetings in the Holy name of our Lord Jesus. This is John Daniel Rebba from India writing to you. I am running a small ministry named 'John's Ministries’ in a small town called Repalle in South India.
Our goal is to reach the unreached with the gospel message, as there are a lot of unreached people in our area.
INTRODUCTION
John’s Ministries is an inter denominational independent Evangelistic Ministry, ministering with a team of 60 evangelists and Bible women in Andhra Pradesh, India. They have dedicated their lives to reach the unreached with the messages of the Lord. The ministry is reaching the rural folks with the Gospel messages through mass evangelism, Gospel Crusades, church planting, youth retreats, children’s Sunday schools, street preaching, distribution of tracts and Bibles, child care and medical service.
Without your prayers and support we cannot do all these. So kindly join hands with us and make this service of God more fruitful. May God bless you and lead you in His way.
In His Service

Dr. John Daniel Rebba
We need your prayer and support for the extension of His Kingdom.
We wish invite you to preach the gospel in India.

Gunni Stefáns | mánudagur, 01-12-08 11:04
Sæll Sakki, Gunni hérna sem vann með þér há Vef Samskiptalausnum um árið.

Rakst hérna inn fyrir tilviljun og vildi bara láta vita af mér. Vinn nú enn hérna en nú heitir fyrirtækið Outcome. Ég, Þórður og Sverrir erum allir hérna ennþá. Endilega líttu við næst þegar þú ert á klakanum.
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti