Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
20
mars
2009

  06:04       Noregur, Fjölskylda      

Höf: Sakki

... jafnvel þótt að það hafi nú liðið nokkuð langur tími frá því að ég skrifaði nokkuð síðast og ég ætla ekkert að lofa neinum bótum. Hinsvegar get ég sagt svolítið frá því sem hefur gerst síðan síðast.

Ég geri ráð fyrir að flestir þeir sem skoða þessa síðu hafi mestan áhuga á því að heyra eitthvað um hann Markús. Nú er hann orðinn 10 mánaða gamall og það styttist óðfluga í eins árs afmælið. Strákurinn getur nú notað borð, sófa, lappir og aðra hluti til þess að standa á fætur. Hann getur fikrað sig hægt og rólega eftir borðkanti, stólum og öðru stöðugu, án nokkurar hjálpar. Samt sem áður finnst honum skemmtilegast þegar annað okkar tekur í hendurnar á honum og leiðir hann fram og til baka eftir gólfinu. Satt að segja finnst honum það svo gaman að hann fer að stórskæla um leið og við stoppum gönguna. Það þarf ekki einu sinni að setja hann niður, bara að stoppa.

Annars er hann líka mjög hrifinn af því að sitja í þartilgerðum bakpoka þegar ég og/eða konan förum í göngutúr.  Hann blaðrar mjög mikið, hvort sem hann er í góðu eða vondu skapi. Því miður getum við lítið skilið hvað hann er að segja, en við getum stundum samt skilið boðskapinn og hann lætur svo sannarlega heyra í sér ef hann er óánægður. Sum orð getum við skilið, eins og mamm, babbababb (pabbi), takk og títthei (þegar hann er að fela sig).

Markús hefur líka gaman að öllu sem aðrir krakkar eru hræddir við, t.d. ókunnugt fólk, gröfur og ryksugan. Þegar verið er að þrífa heima skríður drengurinn á eftir ryksugunni og reynir eftir bestu getu að hjálpa til.


Sjálfur er ég í stöðugri vinnu hér á Fjellhaug við skipulag og eftirlit eftir stúdentaheimilinu. Þetta er strembnari vinna en ég hélt þegar ég tók við henni í janúar, en hún hefur einnig margar góðar hliðar. Í viðbót við þessa vinnu hef ég líka tekið við ritstjórn á fréttablaði skólans. Það er alveg frábær vinna.

Svo er það auðvitað mastersritgerðin. Ég er kominn vel af stað með hana, og fyrir þá sem ekki hafa heyrt það ennþá fjallar hún um "mál beggja kynja". Til þess að koma í veg fyrir misskilning, er ritgerðin ekki ætluð sem gagrýni af biblíu 21. aldar, heldur sem athugun á fyrirbærinu. Þar að auki hefur umræðan um biblíu 21. aldar verið afskaplega lítil í samanburði við t.d. Today's New International Version (TNIV) sem var gefin út á svipuðum tíma.

 

Margrethe er ennþá í barnsburðarleyfi en byrjar bráðum aftu í skólanum. Í vor á hún að taka prófin sem hún gat augljóslega ekki tekið í fyrra. Í vetur hefur hún tekið þátt í mæðramorgnum í kristniboðssalnum í Osló og Hobbýkvöldum á sama stað. Upp á síðkastið hefur hún líka tekið þátt í skipulagningu á þessum samkomum. Varðandi hið síðastnefnda hefur hún sett upp sérstaka bloggsíðu þar sem hún sýnir eitthvað af sem hún er að gera: glederiheimen.blogspot.com

 

Til að gera ekki þessa langloku ennþá lengri læt ég þetta duga í bili.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Ásgeir | mánudagur, 23-03-09 21:17
Ég er að fíla hanakambinn hans.
Axel | miðvikudagur, 25-03-09 07:24
Rolig bild, vad är det han äter? brödsoppa?

Alla fall så är det et bra märke att hann gillar grävmaskiner. Det betyder vanligen att hann kommer att bli snäll, smart och stilig.

hälsningar, Axel
Sakki | föstudagur, 27-03-09 06:59
Já, hanakamburinn er nettur. Ég stal smá hárfroðu frá konunni minni, og vúlla!...
Axel: Það sem er á disknum er banani, skorinn í teninga.
Rut | föstudagur, 27-03-09 16:36
Elska hárið Emoticon nice!
hahaha.... Axel! (snäll, smart o stilig!)
eller kanski (tjuvsovare, pratglad o okoncentrerad!) Emoticon hihi
Sigga frænka | miðvikudagur, 29-04-09 10:42
Elsku litli sæti Markús!.. hann er æði með þessa hárgreiðslu!Emoticon o hvað mig langar til að knúsa hann!..
Vona að það komi vel út úr ritgerðinni þinni bróðir! hugsa til ykkar fjölskyldunnar á hverjum degi og vonast til að fá að hitta ykkur öll í sumar!

Axel lille gubben! du har nog rätt i det där, men jag hoppas att han inte blir lika medveten som du!Emoticon

knús frá Afríku
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti