Síðastliðinn miðvikudag til sunnudags var kristniboðsþing NLM, norska kristniboðssambandsins, haldið í Bergen. Ólíkt SÍK er þetta þing einungis haldið á þriggja ára fresti, og þess vegna er alltaf mikil eftirvænting. Ég ákvað að skrifa svolítið um þingið og okkar upplifun af því.
Allment mót
Kristniboðsþingið minnir svoítið á hið almenna mót SÍK sem var haldið árlega hér í forðum daga. Þetta er stórt mót með samkomum fyrir alla fjölskylduna, bæði á morgnana og síðdegis. Á kvöldin eru svo haldnar unglingasamkomur. Þingumræðurnar eru haldnar milli morgunsamkumunnar og síðdegissamkomunnar. Fjölmargt fólk var á staðnum, og margir höfðu komið langa leið til þes að taka þátt. Fólk keyrði alls staðar að, sumir alla leið frá Tromsö. Þar að auki voru þáttakendur frá kristniboðssvæðum NLM í nær öllum heimsálfunum og aðirir gestir, m.a. frá Íslandi.
Fyrir okkur var mótið líka stórkostlegt tækifæri til þess að skoða borgina Bergen. Ég skil vel að þeir sem flytja héðan til Oslóar fái heimþrá. Borgin er stórklostlega fögur, og sérstæð að mörgu leyti. Það var skemmtilegt fyrir okkur að skoða miðbæinn, gömlu bryggjuna, sjávardýrasafnið, fiskimarkaðinn og öll gömlu húsin.
Efst á baugi á mótinu
Yfirskrift mótsins var "til frihet" sem á íslensku mætti útleggja "til frelsis". Á samvernunum var talað um það að vera frjáls: Frjáls frá syndum sínum, frjáls til að fylgja Kristi, og frjáls til að segja frá honum. Fyrsti ræðumaður mótsins vitnaði um það að hann hefði lifað öllu lífinu eins og góður kristinn einstaklingur. Samt sem áður hafði hann ekki öðlast frelsi. Í raun hafði hann reynt að byggja sína eigin brú til himna, en þegar hann mætti Guði áttaði hann sig á því að hans eigin verk voru einskis virði. Þau gátu ekki frelsað hann. Frelsið felst í því að það er Drottinn sjálfur sem gefur það.
Mótinu lauk með því að nýjir kristniboðar voru vígðir til starfa. Einungis ein af þeim fjölskyldum sem fara út í ár sáu sér fært að koma á mótið, og því var það einungis hún sem var kölluð upp. Stjórn NLM og "Misjonssekritær" vígði fjölsyldkuna. Eftir það var þáttakendum mótsins boðið að koma upp á svið og mynda bænahring um fjölskylduna meðan beðið var fyrir henni. Ég held að á annað hundrað manns hafi komið upp á svið. Að lokum stóðu svo allilr upp og sungu saman "Þjóðsöng" NLM: "Ó Drottinn, ég vil aðeins eitt, að efla ríki þitt."
Efst á baugi á þinginu
Þrjú málefni voru efst á baugi á kristniboðsþinginu. Fyrst var það umræða um hvernig haga á starfinu á næstu þremur árum. Þ.e. starfinu sem þegar er í rekstri. Hvar eiga áherslurnar að liggja, og hvar á að draga úr? var stóra spurningin. Annað málefni var skipting starfsins í Noregi í nokkurs konar "sýslur". Núverandi skipting hefur þjónað sínu hlutuverki og er orðin of dýr í rekstri. Ný skipting þýðir að Noregi verður skipt í sjö starfssvæði í stað sextán. Þetta hefur í för með sér nokkurn niðurskurð og þar með mikinn sparnað. Þriðja málið, og það sem mest spenna var bundin við, var hvort að NLM ætti að stofna eigin söfnuð. Framvkæmdastjóri Ola Tulluan sem kynnti tillöguna, lagði áherslu á það að hér er ekki um að ræða að breyta kristniboðshreyfingunni í söfnuð, heldur að stofna afmarkaðan söfnuð innan hreyfingarinnar. Þessi söfnuður myndi þá gefa kost þá því að þeir sem ekki vilja standa innan þjóðkirkunnar geta í stað skráð sig í söfnuð NLM. Eftir miklar umræður var ákveðið að fresta málinu í þrjú ár.
Gestir frá Íslandi
Við hinnum allnokkra íslendinga á svæðinu. Hér voru bæði íslendingar sem búa í Noregi og eru þar af leiðandi meðlimir í NLM, og íslendingar sem komu frá Íslandi. Sérstakir gestir á vegum SÍK voru Gulli og Vallý. Mér fannst sérstaklega skemmtilegt að hitta allt þetta fólk sem ég hef kannski ekki séð í mörg ár.
Fara aftur á : Dagbók
|