Halló
Ég heiti Sakarías Ingólfssson og ég er Íslendingur búsettur í Noregi. Þangað fluttist ég árið 2003 og ætlaði aðeins að vera eitt ár í biblíuskóla. En mér líkaði noregur og ég varð eftir og legg nú stund á mastersnám í Guðfræði. Ég er giftur norskri konu sem heitir Margrethe og við eigum son sem heitir Markús.

  RSS gagnaveita
My status
My Amazon.com Wish List
26
október
2009

  07:36       Ísland, Noregur, Ferðadagbók, Pirringur      

Höf: Sakki

Það lítur út fyrir að ég hafi fengið í mig þessa leiðindaveiru þegar ég var á Íslandi, því um leið og ég kom heim veiktist ég, trúlega með svínaflensu. Nú er hún nú farin að hjaðna vel og sem betur fer hefur hvorki konan né krakkinn smitast. Þá má svo sem sjá þetta frá björtu hliðinni: ég hef fengið nokkra auka daga í frí. Á hinn bóginn er ég nú eiginlega orðinn leiður á að hanga einn heima.

Jájá, svona getur þetta nú verið, en mér datt í hug að nota tækifærið til að segja aðeins frá því hvernig gengur með Markús. Síðast þegar ég skrifaði um hann var hann enn ekki alveg farinn að ganga. Nú virðist það mjög langt síðan hann nennti nokkuð að skríða og þess í stað hleypur hann um öll gólf, og klifrar í öllu sem han ræður við. Hann getur jafnvel klifrað upp og sest í barnastólinn sinn, og svo klifrað út úr honum aftur. Enn sem komið er hefur hann ekki orðið lofthræddur, en ef hann heldur þessu áfram hlýtur hann bráðum að detta og meiða sig þannig að hann þori ekki meir.

Leikskólinn byrjaði fyrir nokkrum vikum síðan, og hann átti í byrjun nokkuð erfitt með að aðlagast honum. Hann vildi ekki borða neitt á staðnum og í fyrstu vildi hann heldur ekki sofa. Nú virðist þetta hinsvegar vera komið vel á skrið og Markúsi líður mjög vel með öllum hinum krökkunum. Sérstaklega líkar honum að vera úti á lóðinni og leika sér í sandinum. Rennibrautirnar eru líka mjög spennandi. Annars reynum við nú að halda honum heima þegar við getum, enda gott fyrir hann að vera eins mikið með fjölskyldunni eins og hægt er.

Orðin standa ennþá svolítið á sér, en nú finnst okkur við allavega heyra mamma og pabbi (og reyndar líka Sakki). Svo eru nokkur sem hann hefur kunnað lengur, eins og Takk, Hade (Bless), Nei og Já. Einhverra hluta egna er hann líka byrjaður að telja upp fyrstu stafina í stafrófinu. Hugsanlega hefur hann lært það í leikskólanum.

Markús er líka svolítill söngfugl og tekur lagið nokkuð reglulega. Yfirleitt er þetta eitthvað frumsamið og það er mjög sjaldan að við getum greint lög sem við þekkjum til. Það er bara borðsöngurinn okkar "O du som metter liten fugl" og lagið "Bæ, bæ hvite lam" sem við getum greint. Hið síðarnefnda hefur hann líklegast lært á leikskólanum, þótt svo að við stundum syngjum það heima líka.


Fara aftur á : Dagbók
Athugasemdir
Axel | þriðjudagur, 27-10-09 18:15
Det är roligt att läsa att det går bra för honom och det låter som han är ganska musikalsk också Emoticon

Hälsar så mycket och hoppas du blir frisk snart.
Sigga systir | miðvikudagur, 02-12-09 13:30
Gaman að fá fréttir af Kússa, hann er orðinn svo stór!.. oh, hvað ég vildi að ég gæti fengið að hitta hann öðru hvoru til að geta knúsað hann svolítið! Vonandi verðið þið komin með webcam fljótlega þannig að ég get fengið að sjá hann einhverntíman á skype! Emoticon

Guð veri með ykkur fjölskyldunni
kveðja, Sigga
Nafn *
Skilaboð *
Vinsamlegast sláðu inn orðið sem þú sérð á myndinni. Þetta er gert til að hindra ruslpóst Ef þú getur ekki lesið orðið smelltu þá hér.
CAPTCHA mynd - vörn gegn ruslpósti