Um síðuna

Ég var tiltölulega snemma á ferðinni með það að skaffa mér mína eigin heimasíðu. Árið 1998 hafði ég sett upp síðu á slóðinni welcome.to/sakki, með einhverjum upplýsingum um mig, ásamt nokkrum netforritum sem ég hafði smíðað (s.s. gestabók, spjall og teljari). Eitthvað af þessum forritum hafði ég smíðað fyrir vini eða Kristileg skólasamtök. Ég vann síðuna frá tölvustofu Verzlunarskólans, því sjálfur átti ég ekki neina tölvu, né heldur fjölskylda mín. Þessi fyrsta síða var hönnuð í Microsoft paint, og var hún reyndar alls ekki illa útlítandi, þótt ég segi sjálfur frá. Sem lógó í toppi síðunnar hafði ég notað stafina úr lógó-i MetallicA, og hét síðan "Sakkis homepagE". Ekki svo mjög frumlegt, en skemmtilegt þó.

Stuttu síðar uppfærði ég útlit síðunnar, þessu sinni með útliti sem ég stal fra WB. Síðar meir skil ég ekki hvers vegna, því útlitið var greinilega skref aftur á við. Ég fékk einnig úthlutað ókeypis léni (sakki.net) frá lénaskrifstofunni namezero. Sú þjónusta fór fljótt á hausinn og lénið var sent til Network Solutions.

Á þessum tíma vann ég hjá Vef Samskiptalausnum ehf. og hafði aflað mér reynslu í alvöru heimasíðusmíði með vefumsjónarkerfi. Félagasamtökin KFUM&KFUK á Íslandi höfðu óskað eftir slíkri síðu, og ég bretti upp ermarnar og tók að hanna vefumsjónarkerfi frá grunni. Nú gat ég hannað kerfið eins og ég sjálfur vildi hafa það, og þurfti ekki að fara eftir forritunarreglum eða skipulagi, og fljótlega gat ég sett heimasíðu KFUM&KFUK á vefinn í nýja kerfinu. Ég setti einnig mína síðu í sama kerfið, og uppfærði um leið útlitið. Að þessu sinni var útlitið að hluta til stolið frá ximian.com og að hluta til mitt eigið. Ég hafði einnig hannað mér mitt eigið lógó, sem ég setti á síðuna.

En það sem ég hafði reiknað sem styrk, reyndist vera veikleiki. Það að kerfið var mín eigin hönnun, og einungis ég sem skildi innri byggingu þess, varð til þess að þróun kerfisins stöðvaðist. Ég hafði mikið að gera í skólanum, og í lífinu annars, og þar að auki hafði ég þá flutt til Noregs sem olli því að samskiptin við Ísland minnkuðu til muna. Ég ákvað að lokum að ég hafði ekki möguleika á að halda í við þróunina á hinum stóra markaði vefumsjónarkerfa. Þess í stað fór ég að leita að heppilegu open-source vefumsjónarkerfi. Eftir mikla og langa leit, og prufanir á hinum ýmsu kerfum, komst ég að þeirri niðurstöðu að kerfið TYPO3 væri heppilegast til verksins.

Ég hef nú sett upp mína eigin síðu, bæði á Íslensku og Norsku í TYPO3 vefumsjónarkerfinu. Ég bíð eftir nýju útliti frá KFUM&KFUK, til að setja það upp í þessu nýja kerfi. Sjálfur er ég hættur þróun á netinu.